Eftirsóttasti körfuboltatölvuleikur nútímans NBA 2K kemur út á morgun í nýrri árlegu útgáfunni. NBA 2K18 hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu en grafík leiksins og spilun hefur tekið gríðarlegum framförum síðustu árin.
Framleiðendur leiksins hafa lagt áherslu á að bæta raunveruleikastig leiksins. Grafík leiksins hefur verið bætt enn meira og munurinn á milli tölvuleiksins og raunveruleikans orðin ansi lítill.
Söguþráðurinn í MyPlayer möguleika leiksins hefur verið tekin í gegn og búinn til uppá nýtt. Í staðinn fyrir mikinn söguþráð sem þarf að fylgja hefur verið búið til hverfi þar sem hægt er að vera í á milli leikja. Þar er hægt að hanga með öðrum NBA stjörnum, laga leikmanninn og spila "pickup" leiki í hverfinu.
Leikurinn kemur út þann 19. september í ELKO en hægt er að forpanta hann inná ELKO.is.




