HomeFréttirTerrell Vinson til Njarðvíkur

Terrell Vinson til Njarðvíkur

 

Njarðvík hefur gert samning við bandaríkjamanninn Terrell Vinson um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Vinson er 27 ára gamall framherji sem hefur leikið í Finnlandi, á Spáni og í Rúmeníu síðan að hann spilaði í háskólaboltanum bandaríska með liði UMass. Þar á hann leikjamet skólans, en hann spilaði 128 leiki á feril sínum hjá skólanum.

 

Samkvæmt þjálfara Njarðvíkur, Daníel Guðna Guðmundssyni, mun Vinson leysa stöðu lítils og kraftframherja fyrir liðið, enn frekar segir hann:

"Það verður gott að hafa hreyfanlegan mann í kringum Ragnar í teignum og við væntum mikils af Vinson þar sem hann hefur þegar fengið dágóða reynslu úr heimi atvinnumennskunnar"

 

 

Brot af því besta frá Vinson í Rúmeníu:

 

Brot af því besta frá síðasta tímabili hans í Finnlandi:

Fréttir
- Auglýsing -