Í kvöld mætast Rússland og Serbía í undanúrslitum EuroBasket 2017 í Tyrklandi. Bæði voru liðin í D riðil keppninnar þar sem að þau unnu fjóra leiki en töpuðu einum. Innbyrðis leik þeirra í riðlinum sigraði Rússland með 3 stigum, 75-72.
Í 16 liða úrslitum fór Serbía í gegnum Ungverjaland áður en þeir sigruðu Ítlíu í 8 liða. Rússland sigraði Króatíu í 16 liða og Grikkland í 8 liða.
Leikurinn hefst kl. 18:30 og er í beinni útsendingu á RÚV2.
Könnun Karfan.is á Twitter um úrslit leiksins:
Hvort liðið mætir Slóveníu í úrslitum #EuroBasket2017 á sunnudaginn?#korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) September 15, 2017




