Keflvíkingurinn Arnór Ingi Ingvason hefur ákveðið að kveðja uppeldisfélag sitt í bili og leika með Hamar í 1. deildinni í vetur. Arnór er 19 ára gamall bakvörður sem spilað hefur 55 leiki með meistaraflokki Keflavíkur á síðustu þremur tímabilum.
Samkvæmt formanni Keflavíkur tjáði Arnór félaginu fljótlega eftir síðasta tímabil að hann ætlaði sér að róa á önnur mið, en þrátt fyrir þennan leikjafjölda var leikmaðurinn ekki að fá mörg tækifæri með liðinu.
Hamar endaði í 5. sæti 1. deildarinnar í fyrra, en var eftir úrslitakeppni aðeins nokkrum mínútum frá því að tryggja sér sæti í Dominos deildinni í úrslitaeinvígi gegn Val.




