Tveir leikir fóru fram í Icelandic Glacial æfingamótinu í Þorlákshöfn í kvöld. Í fyrri leiknum sigraði Keflavík granna sína úr Njarðvík með 74 stigum gegn 72, en í þeim seinni lagði Þór lið Hattar nokkuð örugglega, 92-64.
Úrslit kvöldsins:
Keflavík 74-72 Njarðvík
Fyrir Keflavík var Ágúst Orrason stigahæstur með 23 stig. Nýr erlendur leikmaður þeirra Kevin Young kom næstur með 19 stig og 8 fráköst. Magnús Már Traustason setti svo 13 stig.
Fyrir Njarðvík var Ragnar Nathanaelsson atkvæðamestur með 19 stig og 12 fráköst. Nýr erlendur leikmaður þeirra Terrell Vinson kom næstur með 15 stig og 5 fráköst. Ragnar Helgi Friðriksson setti einnig 10 stig.
Þór Þ 92-64 Höttur
Fyrir Þór var Jesse Pellot Rosa atkvæðamestur með 23 stig og 5 fráköst. Næstur kom Halldór Garðar Hermannsson með 21 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar. Þá var Emil Karel Einarsson með 10 stig og 3 fráköst.
Fyrir Þór var Taylor Stafford atkvæðamestur með 18 stig og 3 fráköst. Næstur kom Mirko Stefán Virijevic með 17 stig og 5 fráköst.




