HomeFréttirÞór mætir Keflavík og Njarðvík leikur við Hött

Þór mætir Keflavík og Njarðvík leikur við Hött

 

Icelandic Glacial mótið í Þorlákshöfn fór af stað með tveimur leikjum í gærkvöldi, þar sem að Keflavík vann Njarðvík og Þór sigraði Hött. Í dag heldur þetta þriggja daga, fjögurra liða æfingamót áfram með tveimur leikjum. Í þeim fyrri leika Höttur og Njarðvík kl. 14:00 áður en að heimamenn í Þór mæta Keflavík kl. 16:00.

 

Mikið er af nýjum leikmönnum hjá liðunum á þessu undirbúningsmóti, sem og voru þau öll komin með sína erlendu leikmenn fyrir það. Þó um æfingamót sé að ræða getur verið áhugavert fyrir þá sem þyrstir eru að sjá þessi lið fyrir fyrsta leik í Íslandsmótinu, að gera sér ferð í Þorlákshöfn og bera leikina augum.

 

Hérna er dagskrá mótsins

Úrslit föstudagsins

 

 

Laugardagur 16.september:

14:00     Höttur – Njarðvík
16:00     Keflavík – Þór Þ

Fréttir
- Auglýsing -