HomeFréttirNjarðvík sigraði Hött & Þór lagði Keflavík

Njarðvík sigraði Hött & Þór lagði Keflavík

 

Annar leikdagur Icelandic Glacial mótsins í Þorlákshöfn fór fram í dag. Í þessu fjögurra liða móti voru tveir leikir. Í þeim fyrri lagði Njarðvík lið Hattar, 85-76 og í þeim seinni unnu heimamenn í Þór lið Keflavíkur, 95-80. Fyrir lokadaginn er Þór því eina liðið sem sigrað hefur báða leiki sína, en þeir leika gegn Njarðvík á morgun á meðan að Höttur og Keflavík eigast við.

 

Dagskrá mótsins

Úrslit leikja föstudags

 

 

Úrslit dagsins:

 

Höttur 76 – 85 Njarðvík

Stig Njarðvíkur: Terrell Vinson 21, Maciej Baginski 16, Ragnar Nathnaelsson 10.

Stig Hattar: Taylor Stafford 32, Mirko Stefán Virijevic 13.

 

Keflavík 80 – 95 Þór 

Stig Þórs: Halldór Garðar Hermannsson 25, Jesse Pellot-Rosa 20, Þorsteinn Már Ragnarsson 12, Magnús Breki Þórðarson 11, Emil Karel Einarsson 9, Snorri Hrafnkelsson 8, Adam Eiður Ásgeirsson 8.

Stig Keflavíkur: Raggi Örn Bragason 17, Kevin Young 14, Magnús Már Traustason 12, Ágúst Orrason 12, Guðmundur Jónsson 6, Arnór Sveinsson 6, Daði Lár Jónsson 6.

 

 

Mynd / Davíð Þór Guðlaugsson

Fréttir
- Auglýsing -