KR sigraði Stjörnuna í æfingaleik í dag með 92 stigum gegn 79. Leikurinn mun vera sá eini sem liðið leikur áður en að þeir mæta Belfius Mons í Evrópukeppninni komandi þriðjudag.
Fyrir KR var það nýr erlendur leikmaður þeirra, Jalen Jenkins, sem var atkvæðamestur með 22 stig, en hjá Stjörnunni var það Colin Pryor sem dróg vagninn með 18.
Leikur dagsins:
KR 92 – 79 Stjarnan
Stig KR: Jalen Jenkins 22, Brynjar Þór Björnsson 18, Jón Arnór Stefánsson 17, Sigurður Þorvaldsson 10, Darri Hilmarsson 10, Pavel Ermolinskij 9, Björn Kristjánsson 6.
Stig Stjörnunnar: Colin Pryor 18, Tómas Hilmarsson 15, Eysteinn Bjarni Ævarsson 12, Arnþór Freyr Guðmundsson 12, Hlynur Bæringsson 10.
Leikur KR gegn Belfius Mons er á þriðjudaginn kl. 19:00, en klukkutíma áður, kl. 18:00 verður kveikt á grillinu fyrir stuðningsmenn.




