Samkvæmt færslu KR Karfa á Facebook verður framherji þeirra, Vilhjámur Kári Jensson, frá næstu 6 vikurnar. Vilhjálmur er sagður hafa meiðst á ökkla æfingu liðsins, þannig að sprunga kom í beinið. Vilhjálmur lék 31 leik fyrir liðið á síðasta tímabili og tæpar 9 mínútur að meðaltali í leik í deildarkeppninni.
Vilhjálmur er annar leikmaðurinn sem KR missir fyrir leikina mikilvægu gegn Belfius Mons í Evrópukeppninni, en fyrr í vikunni tilkynnti landsliðsmaðurinn Kristófer Acox að hann ætlaði að leika með Filipseyja liðinu Star Hotshots næstu vikurnar.
Lið KR þó ennþá með valinn mann í hverri stöðu fyrir keppnina, þar sem að aðrir landsliðsmenn þeirra, Brynjar Þór Björnsson, Jón Arnór Stefánsson og Pavel Ermolinskij ásamt nýjum erlendum leikmanni, Jalen Jenkins, léku allir í æfingaleik þeirra gegn Stjörnunni fyrr í dag.
Fyrri leikur KR í Evrópukeppninni er komandi þriðjudag kl. 19:00 í DHL Höllinni, en klukkutíma áður verður tendrað á grillinu fyrir stuðningsmenn.




