HomeFréttirSeptember kraftröðun Karfan.is - Dominos deild kvenna

September kraftröðun Karfan.is – Dominos deild kvenna

 

Mánaðarlega mun Karfan birta kraftröðun í vetur. Þar er ekki aðeins tekin til staða liðanna í deildinni, heldur einnig breytingar á leikmannahópum og það gengi, eða sú sveifla sem liðið er í á hverri stundu.

 

Riðið var á vaðið með Dominos deild karla, en hér fyrir neðan er september útgáfan fyrir Dominos deild kvenna. Það sem horft er til í þessari fyrstu útgáfu er breyting á leikmannahópum liðanna, en ekki er tekið sérstakt tillit til æfingaleikja sem liðin hafa spilað í þetta skiptið, nema að litlu leyti.

 

Örvarnar munu á næsta lista merkja færslu liða á milli mánaða, en þar sem þetta er fyrsti sinnar tegundar, þá eru þær miðaðar við endanlega stöðu liðs í deildinni á síðasta tímabili.

 

 

#1: Keflavík

 

 

 

Íslands-og bikarmeistarar Keflavíkur eru með nákvæmlega sama lið og á síðasta tímabili fyrir utan að nýr erlendur leikmaður er komin til liðsins. Leikmenn liðsins ári eldri og reynslunni ríkari. Mun meiri pressa á liðinu í ár og verður spennandi að sjá hvernig þær bregðast við því.

 

Komnar:

Brittany Dinkins frá USA

 

Farnar:

Ariana Moorer 

 

 

 

#2: Haukar

 

 

Ungt og efnilegt lið Hauka sýndi á köflum frábæra takta á síðasta tímabili. Að þær fái Helenu Sverrisdóttur aftur inn fyrir þetta tímabil er þó hin raunverulega ástæða þess að þær eru svona ofarlega þessa stundina. Bæði sýndi Helena það í síðustu leikjum síðasta tímabils hvers megnug hún er, sem og eru fréttir af henni í fanta formi á þessu undirbúningstímabili. Frábært bæði fyrir þetta unga Haukalið, sem og deildina í heild að fá hana aftur inn.

 

 

Komnar

Valdís Ósk Óladóttir frá Tindastól

Fanney Ragnarsdóttir frá Fjölni

Cherise Michelle Daniel

 

Farnar

Sólrún Inga Gísladóttir til USA

 

 

#3: Skallagrímur

 

 

Borgnesingar áttu virkilega gott nýliða ár á síðasta tímabili. Ákváðu þrátt fyrir það að skipta um þjálfara og réðu fyrrum landsliðsþjálfara Norður-Kóreu Richi Gonzalez. Carmen Tyson-Thomas er einnig mætt en hún var stigahæst í deildinni í fyrra en samt látin fara frá Njarðvík áður en tímabilið kláraðist. Liðinu skorti breidd á síðasta tímabili en hefur misst fleiri leikmenn en það fékk, mega ekki við neinum meiðslum því þá er úrslitakeppnin í hættu.

 

Komnar

Bríet Lilja Sigurðardóttir frá Tindastól

Carmen Tyson-Thomas frá Njarðvík

Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir frá Fjölni

 

Farnar

Ragnheiður Benónísdóttir til Vals

Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir til ÍR

Hanna Þráinsdóttir til ÍR

Tavelyn Tillman óvíst

Sólrún Sæmundsdóttir óvíst

Kristrún Sigurjónsdóttir í Val

 

 

#4: Snæfell

 

 

Það er erfitt að sjá fyrir sér Snæfells liðið mikið ofar en í fjórð sætinu miðað við þá leikmenn sem þær missa fyrir þetta tímabilið. Eru hinsvegar með frábæran þjálfara í Inga Þór, mögulegan leiðtoga í Berglindi Gunnarsdóttur og góðan erlendan leikmann í Kristen McCarthy. Spurning er hvernig þetta á eftir að virka.

 

Komnar

Kristen McCarthy frá Rúmeníu

 

Farnar

Gunnhildur Gunnarsdóttir í barneignarleyfi

Bryndís Guðmundsdóttir hætt

Pálína María Gunnlaugsdóttir óvíst

Alda Leif Jónsdóttir hætt

Helga Hjördís Björgvinsdóttir í barneignarleyfi

Hrafnhildur Magnúsdóttir til Danmerkur

Aaryn Ellenberg óvíst

 

 

#5: Valur

 

 

Valur virtist ekki spila að fullri getu á síðasta tímabili og voru nokkuð frá úrslitakeppninni. Liðið hefur klárlega styrkt sig í sumar og eru með góða breidd af sterkum leikmönnum. Valur verður mun nær úrslitakeppninni í ár og gætu klifið ofar ef liðið finnur sjálfstraustið og taktinn snemma.

 

Komnar

Ragnheiður Benónísdóttir frá Skallagrím

Ásta Júlía Grímsdóttir frá KR

Lexi Petersen frá Grikklandi

Kristín María  Matthíasdóttir frá Fjölni

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir frá KR

Kristrún Sigurjónsdóttir úr Skallagrím

 

Farnar

Mia Lloyd til

Hrafnhildur Magnúsdóttir til ÍR

 

 

#6: Stjarnan

 

  

 

Öll lið sem voru á svipuðum stað og Stjarnan á síðasta tímabili hafa styrkt sig en Stjarnan hefur misst leikmenn. Ungir leikmenn sem skiluðu góðu framlagi hafa hætt og þá verður liðið án Hafrúnar sem var í stóru hlutverki á síðasta tímabili. Mikil gæði enn í liðinu og pressa á öðrum leikmönnum að stíga ennþá meira upp.

 

Komnar

 

Farnar

Sigrún Karlsdóttir til Ármanns

Jónína Þórdís Karlsdóttir hætt

Viktoría Líf Steinþórsdóttir hætt

Hafrún Hálfdánardóttir í barneignarleyfi

Margrét Kara Sturludóttir í fríi

 

 

#7: Njarðvík

 

 

Njarðvík losaði sig við besta leikmann deildarinnar rétt fyrir lok síðasta tímabils þegar að þær sögðu upp samningi Carmen Tyson-Thomas. Sem nýliðar í deildinni í fyrra voru þær á einhverjum tímapunkti inni í úrslitakeppnisumræðunni, þá var það aðallega vegna þess hversu marga leiki Carmen hafði unnið fyrir þær. Nú erum við ekki að leggja neitt mat á hvort þær hefðu átt að halda í hana eða ekki, hinsvegar eigum við alveg eftir að sjá hvernig þær ætla að vinna leiki án hennar.  

 

Komnar

Hrund Skúladóttir frá Grindavík

Erika Williams frá USA

 

Farnar

Carmen Tyson Thomas til Skallagríms

 

 

#8: Breiðablik

 

  

 

Nýliðarnir sömdu við stærsta bitann á markaðnum í sumar er Hildur Björk kom til Blika. Hún ákvað síðar að fara í atvinnumennskuna til Spánar. Breiðablik mætir því með sama lið til leiks og vann 1. deild kvenna á síðasta tímabili. Góð blanda af ungum, efnilegum leikmönnum og reynslu. Ekki víst hvort það sé nóg til að halda sæti sínu í deildinni.

 

Komnar

Hildur Björk Kjartansdóttir frá USA

Lovísa Falsdóttir frá Grindavík

 

Farnar

Hildur Björk Kjartansdóttir til Spánar

Hlín Sveinsdóttir til ÍR

Elín Kara Karlsdóttir til ÍR

Jóhanna Herdís Sævarsdóttir til ÍR

Snædís Birna Árnadóttir til ÍR

Rannveig Bára Bjarnadóttir til ÍR

 

Fréttir
- Auglýsing -