Lokaleikir 6. umferðar Dominos deildar karla fara fram í kvöld. Í Grindavík munu heimamenn taka á móti meisturum KR kl. 20:00. Liðin mættust í lokaúrslitum síðasta vor, en þá fór KR með sigur af hólmi eftir oddaleik úrslita. Það sem af er vetri eru KR einum sigurleik fyrir ofan Grindavík í töflunni og gætu þeir því með sigri jafnað þá að stigum.
Þá eru einnig þrír leikir í 1. deild karla og einn í 1. deild kvenna.
Hvort liðið vinnur leik kvöldsins í Mustad Höllinni? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) November 10, 2017
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Valur Stjarnan – kl. 19:15
Grindavík KR – kl. 20:00 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
1. deild kvenna:
Þór KR – kl. 19:30 í beinni útsendingu Þór Tv
1. deild karla:
Fjölnir Gnúpverjar – kl. 19:15
ÍA Breiðablik – kl. 19:15
Hamar FSu – kl. 19:15




