Íslandsmeistarar KR hafa samið við bandaríkjamanninn Zac Carter um að leika með þeim í Dominos deildinni fram yfir jól. Carter ekki íslenskum körfuknattleiksáhangendum ókunnur, en hann hefur það sem af er vetri leikið með Skallagrím í 1. deildinni. Carter er 23 ára bakvörður sem skilaði 27 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í 6 leikjum fyrir Skallagrím.
Fyrir var Jalen Jenkins sem erlendur leikmaður hjá KR, en hann mun verða áfram.
Aðspurður sagði þjálfari KR, Finnur Freyr Stefánsson:
"Í ljósi aðstæðna vegna lygilega fjölda meiðsla þá ákvaðum við að nýta það tækifærið sem bauðst að ráða Zac til starfa. Með þá Jón Arnór, Arnór og Vilhjálm Kára alla frá í lengri tíma auk þess sem Pavel verður ekki leikfær á næstu vikum eru stór skörð hoggin í leikmannahópinn."
Þá hafa Sigurður Þorvaldsson, Brynjar Þór Björnsson og Björn Kristjánsson allir verið að eiga við meiðsl framan af móti.
Um hlutverk Carter sagði Finnur:
"Okkur vantar því leiikstjórnanda til að bakka upp Björn og mun hlutverk Zac vera að spila þær mínútur þegar Björn og Jalen eru útaf. Jalen mun áfram vera í því lykilhlutverki sem hann hefur verið í"




