Keflavík og Njarðvík eru þau lið sem fá flest stig af bekknum í Dominos deildum karla og kvenna.
Í Dominos deild kvenna er Njarðvík að fá 23 stig, Keflavík 20 stig og Valur þriðju flest með 15. Fæst stig fær lið Skallagríms af tréverkinu, eða tæp 7 í leik.
Í Dominos deild karla er það Keflavík sem fær flest stig af bekknum eða tæp 37, í öðru sæti er Tindastóll með 30 og í því þriðja Haukar með tæp 28 stig skoruð af bekknum í hverjum leik. ÍR fær fæst stig allra af bekk sínum eða um 16 að meðaltali í leik.
Hér fyrir neðan má sjá útreikninga fyrir deildirnar sem að Rúnar Birgir Gíslason tók saman.
Dominos deild kvenna:
Stig af bekk í Dominosdeild kvenna. Raðað eftir meðaltali pr leik #dominos365 #korfubolti pic.twitter.com/CvmH8asIIs
— Runar B Gislason (@rungis75) November 26, 2017
Dominos deild karla:
Stig af bekk í Dominosdeild karla. Raðað eftir meðaltali pr leik #dominos365 #korfubolti pic.twitter.com/4RzL0Ar0SA
— Runar B Gislason (@rungis75) November 26, 2017




