Leikstjórnandi toppliðs Vals í Dominos deild kvenna Dagbjört Dögg Karlsdóttir verður frá næstu 6 vikurnar vegna þumalbrots. Að sögn hennar lenti hún í samstuði við leikmann Hauka í leik gærkvöldsins með þeim afleiðingum að eitthvað small í þumlinum, þurfti hún þá að hætta leik og halda á sjúkrahúsið. Þar var henni sagt að að hún yrði í gifsi næstu 3 vikurnar og frá körfubolta í næstu 5-6 vikurnar. Segist hún þá mögulega verða orðna eitthvað betri á vinstri þegar að hún kemur til baka úr þessum meiðslum og að körfubolti sé meira en bara hægri höndin, þar sem hún ætli að vinna í hugarfari á meðan hún er frá.
Leiðindafréttir fyrir Dagbjörtu og stuðningsmenn Vals, en hún hefur leikið afar vel það sem af er tímabili. Skilað 8 stigum, 4 fráköstum og 2 stoðsendingum að meðaltali í 11 leikjum fyrir toppliðið.
Í spjalli við Körfuna virtist Dagbjört þó brött og segist ekki vera viss hvort að hún endist án körfubolta allar vikurnar 6. Bendir hún þá á að eftir atvikið í leiknum hafi henni tekist að setja niður eina þriggja stiga körfu áður en hún lauk leik, sem verður að teljast nokkuð gott.




