HomeFréttirKeflvíkingar sterkari á lokasprettinum

Keflvíkingar sterkari á lokasprettinum

Keflvíkingar gerðu góða ferð í Ljónagryfjuna í kvöld með sigri á Njarðvíkingum í enn einum spennuslag þessara erkifjenda í Reykjanesbæ. Reggie Dupree var traustur í liði Keflvíkinga sem gáfust aldrei upp og reyndust sterkari á lokasprettinum. Lokatölur í Ljónagryfjunni 81-85 Keflavík í vil.

Heimamenn í Njarðvík leiddu 22-13 eftir fyrsta leikhluta en Keflvíkingar áttu öflugar tíu mínútur í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn í 43-42 og þannig stóðu leikar í hálfleik. 

Stóru menn kvöldsins áttu bágt með að ná takt við leikinn þeir Ragnar Á. Nathanaelsson í liði Njarðvíkur og Stanley Earl Robinson sem þó hóf að rífa í sig fráköstin þegar leið á leikinn. 

Heimamenn í Njarðvík komu ferskari inn í þriðja leikhluta og leiddu 63-58 að honum loknum. Þröstur Leó Jóhannsson og Reggie Dupree voru svo fyrirferðamiklir á meðan Keflavík vann upp muninn og jafnaði metin í fjórða leikhluta en Reggie jafnaði leikinn 72-72 af vítalínunni með ríflega tvær mínútur til leiksloka. Á lokasprettinum voru gestirnir einfaldlega hungraðri og lönduðu tveimur rándýrum stigum í Ljónagryfjunni 81-85. 

Lykil-maður leiksins: Reggi Dupree með 23 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar en Reggie var prímusmótorinn hjá Keflavík í kvöld og stýrði liðinu af röggsemi í gegnum erfiðustu hjalla leiksins. Njarðvíkingar að sama skapi geta nagað sig í handarbökin með að hafa ekki haldið betur á spilunum í fjórða leikhluta. 

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Myndir / SBS

Fréttir
- Auglýsing -