HomeFréttirHamar stakk af í seinni hálfleik

Hamar stakk af í seinni hálfleik

 

Skallagrímur og Hamar mættust í kvöld í Borgarnesi. Bæði lið hafa verið á góðri leið í 1.deildinni en aðeins eitt lið mætti í seinni hálfleik þessa leiks. Það var lið Hamars sem tók öll völd á leiknum í seinni hálfleik og tóku 2 góða punkta til síns heima.

 

Fjósið.

Dómarar eru Jakob Árni Íslefsson og Márus Björgvin Gunnarsson. Kátir piltar.

Skallagrímur(3 sigrar í röð) í efsta sæti deildarinnar með 18 stig en Hamar(4 sigrar í röð) situr í 5.sæti með 12 stig.

 

Byrjunarlið Skallagríms: Aaron-Flake-Kristófer-Kristján-Eyjólfur.

Byrjunarlið Hamars: Jón Arnór-Nelson-Þorgeir-Oddur-Ísak.

 

1.leikhluti.“Þristum rignir“

 „Láttu þá rigna“ öskraði Þórður Hávaði úr stúkunni og leikmenn beggja liða brugðust við því. Alls komu 8 kvikindi í leikhlutanum. Skallagrímur komst í 12-4 en Hamar kom þá og lokaði leikhlutanum með 12-19 áhlaupi og staðan eftir 1.leikhluta því 24-23.

 

2.leikhluti. „Langur leikhluti leikinn“

Mikið af villum einkenndi leikhlutan. Bæði Oddur og Aaron fengu tvær snöggar villur og voru komnir með 3 villur snemma í leikhlutanum. Liðin voru mikið að röfla í dómurum og fór fegurðin úr leik beggja liða. Hamar samt ívið sterkari og voru að spila meiri liðsbolta á meðan að Skallagrímur voru í einstaklingsverkum. Imba Hargrave reyndi að öskra Skallagrím áfram og náðu þeir að minnka munnin fyrir hálfleik en staðan 50-51.

 

Tölfræði fyrri hálfleiks:

Skallagrímur voru að skjóta 56% á meðan að Hamar voru með 46%. Hamar voru með 22 fráköst á móti 16 hjá Skallagrím.

Eyjólfur var komin með 13 stig-4 fráköst-4 stoð á meðan að Julian Nelson var komin með 18 stig-4 fráköst.

 

3.leikhluti: „KjörísBíllinn“

Hamar byrjaði hálfleikinn mikið mun grimmari á meðan Skallar voru að reyna mikið af einstaklings atriðum og virkuðu pirraðir. Skallar komust í náðu muninum í 58-60 en þá kom kafli sem gerði út um leikinn. Hamar tók öll völd, voru með læti, létu boltan ganga og fengu góð skot á meðan að Skallagrímur voru of mikið að einbeita cher af sóknarleik en ekki að ná stoppi. Hamar skellti í 0-16 kafla og Kjörís bíllinn var byrjaður að volgna á bílaplani Fjósins. Hamar vann leikhlutan 16-32 og hafði þægilega forystu fyrir síðasta leikhlutan, 66-83.

 

4.leikhluti: „Hlaupum burt með þennan“

Skallagrímur náði koma muninum í 75-87 þegar um 6 mín voru eftir en Hamars-menn tóku þá bara upp á því að hitta úr flest öllum skotum sínum og silgdu heim á Kjörís bílnum góðum sigri, 82-104.

 

 

Hamar voru mun betri aðilin í þessum leik. Samkennd og gleði einkenndi leik þeirra á meðan að leikmenn Skallagríms virkuðu pirraðir og andlausir strax frá byrjun. Einstaklings framtak í sókn Skallagríms var einkennandi en þegar boltin fékk að rúlla fengu þeir opin skot.

Tölfræði Skallagríms: 41% skotnýting-12/17 vítanýting-36 fráköst-21 stoðsending-15 tapaðir.

Tölfærði Hamars: 45% skotnýting-26/29 vítanýting-52 fráköst-30 stoðsendingar-13 tapaðir.

 

Upp og Áfram!!

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / Hafþór Gunnarsson

Fréttir
- Auglýsing -