HomeFréttirHaukar kaffærðu Stjörnuna í fjórða leikhluta

Haukar kaffærðu Stjörnuna í fjórða leikhluta

 

Stjörnumenn tóku í kvöld á móti Haukum í Domino’s deild kara. Fyrir leikinn höfðu Stjörnumenn unnið tvo leiki í röð en Haukar þrjá og því ljóst að annað liðið þyrfti að sjá á bak sigurgöngu sinni eftir kvöldið. Eftir afar jafnan leik stærstan hluta leiksins fór það svo að á lokamínútunum skelltu Haukar í lás og unnu sinn fjórða sigur í röð, lokatölur 83-96 fyrir Hafnfirðinga.

 

Þáttaskil

Stjörnumenn voru yfir nánast allan leikinn en misstu heldur betur dampinn í fjórða leikhluta. Garðbæingar byrjuðu leikinn frábærlega og komust m.a. í 8-0 áður en Haukar rönkuðu við sér og komust á blað. Stjörnumenn héldu forystu alveg fram í fjórða leikhluta þegar Haukar skelltu einfaldlega í lás í vörninni. Á sama tíma steig Kári Jónsson, sem hafði átt fremur rólegan leik fram að því, heldur betur upp í sókn gestanna og leiddi sitt lið til sigurs.

 

Hetjan

Eins og áður sagði steig Kári Jónsson upp í fjórða leikhluta en fram að því hafði Paul Jones þriðji haldið Haukum á floti. Jones skoraði 28 stig fyrir gestina, mörg hver úr mjög erfiðum skotum. Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunnar hafði það á orði í viðtali eftir leik að heimamenn hafi verið mjög ánægðir með þau skot sem Jones fékk, en Jones virtist ekki geta klikkað. Ef Jones hefði ekki notið við er alls ekki víst að Haukar hefðu átt jafnmikla möguleika á sigri, en hann hitti úr ellefu af tólf skottilraunum sínum, sem gerir 92% nýtingu.

 

Framhaldið

Stjörnumenn sitja nú í 8. sæti deildarinnar með 8 stig, en Haukar sitja í því fjórða með 12 stig. Stjörnumenn halda næst í Reykjanesbæ, þar sem þeir mæta Keflavík, á meðan Haukar mæta toppliði ÍR á Ásvöllum.

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / Elías Karl Guðmundsson

 

Viðtöl:

 

Fréttir
- Auglýsing -