Topplið Tindastóls kíkti í heimsókn í DHL höllina þar sem á móti þeim tóku galvaskir KR-ingar. Afar mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Mikilvægt fyrir Tindastól að festa sig í sessi á toppi deildarinnar og lífsnauðsynlegt fyrir KR að hrista af sér haustslenið og tryggja sigur á heimavellinum upp á innbyrðis viðureignir í vor.
Tindastóll sá aldrei til sólar í þessum leik. KR náði strax 10 stiga forystu snemma í leiknum og þar við sat fram í annan leikhluta. Þá varð Brynjar Þór nokkur, leikmaður KR skíðlogandi af hita út um allan völl. Brynjar setti hvert þriggja stiga skotið af fætur öðru og mokaði liðinu upp í 20 stiga foyrstu eins og hendi væri veifað.
KR reyndi einnig hvað eftir annað að tapa leiknum aftur niður með töpuðum boltum og að hleypa Stólunum í gefins sóknarfráköst (en þeir voru með 16 slík í leiknum) – Tindastóll hafnað bara öllum slíkum tilboðum og nýtti engin af þeim færum sem buðust í kjölfarið. KR sigraði örugglega 97-69.
Eins og alltaf var Twitter í miklu stuði á meðan á leiknum stóð og má finna það besta af forritinu hér að neðan:
Kjartan þú ert með númerið mitt…..#dominos365 pic.twitter.com/9HVHfjpBjo
— Hermann Hauksson (@HemmiHauks) December 4, 2017
S/O á Kristó fyrir að mæta aftur inn í sal eftir leik sem vannst 97-69 því hann er ósáttur með vítanýtinguna sína! ????_x1f3c0_ pic.twitter.com/1vsr775VTj
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) December 4, 2017
Feel your pain @TindastollKarfa! Ég var í byrjunarliði @UMFNOfficial sem tapaði fyrir @krkarfa með meiri mun en við skoruðum 2008/2009 tímabilið… #dominos365
— Saevar Saevarsson (@SaevarS) December 4, 2017
Það eru náttúrulega bara forréttindi að hafa @Brynjarthorb í liðinu sínu. _x1f451__x1f3c0__x1f451__x1f3c0__x1f451_ #dominos365
— Magnús Þ. Lúðvíksson (@magnusludviks) December 4, 2017
Heyrði að KR ingar hafi falið slökkvitækin í DHL höllinni. Hefðu ekki þurft að gera það þar sem það er ekki hægt að slökkva á Brynjari þegar það kviknar í honum #dominos365 @korfuboltakvold
— magnus bodvarsson (@zicknut) December 4, 2017
Þegar ég hélt að ég væri búinn að sjá allt í körfubolta þá bjóða Stólanir uppá einhverja þá verstu frammistöðu, miðað við getu, sem ég hef séð. Myndu ekki hitta sjóinn af bryggjunni hvað þá annað #dominos365
— Halldór Sigfússon (@dorifusa) December 4, 2017
Keflavík komið á toppinn í bekkjarskori Dominosdeildar kvenna #dominos365 #korfubolti pic.twitter.com/uv1roX2AG5
— Runar B Gislason (@rungis75) December 4, 2017
@Brynjarthorb elskar stóra leiki #heatcheck #korfubolti
— Jón Arnór Stefánsson (@jonstef9) December 4, 2017
Það var ekki annað hægt en klappa bara fyrir Brynjari! On to the next one Tindastóll!
— Auðunn Blöndal (@Auddib) December 4, 2017
Elska svona stórleiki. Verður spennandi að sjá hvor fer með sigur af hólmi, Brynjar eða allt lið Tindastóls samanlagt. #körfubolti #dominos365
— Elín Lára (@ElinLaraRey) December 4, 2017
Aumingja frammistaða
— Runar M Sigurjonsson (@RunarSigurjons) December 4, 2017
Það er ekki mikið af lausum stólum í Frostaskjóli. Þetta lítur vel út hjá KR. Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) December 4, 2017




