Landsliðsþjálfarar kvennaliðs Íslands tilkynntu í dag hvaða 13 leikmenn það eru sem halda til Lúxemborg á milli jóla og nýárs til þess að taka þátt í æfingamóti. Á mótinu með Íslandi verður undir 20 ára lið Hollands og heimastúlkur í Lúxemborg.
Tveir nýliðar eru í hóp liðsins, en það eru þær Isabella Ósk Sigurðardóttir og Sóllilja Bjarnadóttir úr Breiðabliki.
Haldið verður út þann 27. desember og komið aftur heim þann 30.
| Leikmaður | Félag | Landsleikir |
| Berglind Gunnarsdóttir | Snæfell | 15 |
| Birna Valgerður Benónýsdóttir | Keflavík | 5 |
| Elín Sóley Hrafnkelsdóttir | Valur | 3 |
| Emelía Ósk Gunnarsdóttir | Keflavík | 8 |
| Guðbjörg Sverrisdóttir | Valur | 9 |
| Helena Sverrisdóttir | Haukar | 66 |
| Hildur Björg Kjartansdóttir | Legonés, Spánn | 19 |
| Isabella Ósk Sigurðardóttir | Breiðablik | Nýliði |
| Ragna Margrét Brynjarsdóttir | Stjarnan | 41 |
| Sandra Lind Þrastardóttir | Horsholm, Danmörk | 16 |
| Sóllilja Bjarnadóttir | Breiðablik | Nýliði |
| Thelma Dís Ágústsdóttir | Keflavík | 9 |
| Þóra Kristín Jónsdóttir | Haukar | 4 |




