Þessa stundina fer fram leikur Grindavíkur og Vals í Dominos deild karla. Nokkuð eru síðan þessu lið mættust síðasta í efstu deild karla á Íslandi en leikurinn er áhugaverður fyrir fleiri sakir.
Systkinin Davíð Tómas Tómasson og Georgia Olga Kristiansen dæma nefnilega saman leikinn ásamt Gunnlaugi Briem. Það mun vera í fyrsta skipti sem þau systkinin dæma saman í Dominos deild karla en þau hafa dæmt saman m.a. bikarúrslitaleik yngri flokka.
Georgía hóf að dæma í efstu deild karla fyrr á þessu tímabili og hefur mikla reynslu þegar kemur að dómgæslu. Davíð Tómas einnig en hann varð í sumar FIBA dómari.
Mynd/ Sigurbjörn Daði Dagbjartsson




