Í ljós kom í dag að leikmaður Keflavíkur, landsliðskonan Emelía Ósk Gunnarsdóttir væri með slitin krossbönd, en hún meiddist í sgurleik liðsins á Skallagrím í síðustu umferð Dominos deildar kvenna. Eins og margir vita er þar líklega um endir á þessu tímabili fyrir leikmanninn að ræða.
Samkvæmt þjálfara liðsins, Sverrir Þórs Sverrissyni, er um mikinn missir fyrir Keflavíkurliðið að ræða, en segir hann missirinn mestan fyrir Emelíu. Segir hann hana ekki einungis vera einn besta varnarmann landsins, heldur einnig einn besta leikmann deildarinnar í heild.
Þá segir Sverrir Emelíu vera svakalega metnaðarfulla og að hann sé ekki í neinum vafa að hún muni koma enn öflugri úr þessum meiðslum.




