Síðasti leikur í 10.umferð Dominosdeildar karla fór fram í kvöld þegar Þór Þorlákshöfn tók á móti nöfnum sínum Þór frá Akureyri. Leikurinn fór frábærlega af stað fyrir heimamenn en snemma komust þeir í 18-2 og var ljóst í hvað stefndi strax frá byrjun.
Heimamenn pressuðu hátt og voru Akureyringar mikið að tapa boltanum en strax eftir 5 mínútur í fyrsta leikhluta höfðu Þór Akureyri tapað boltanum 7 sinnum en heimamenn gengu á lagið og röðuðu inn stigum. Gestirnir að norðan reyndu hvað þeir gátu að berja frá sér en lítið gekk og héldu Þorlákshafnar Þórsarar þægilegri forystu út allan leikinn sem endaði með stórsigri heimamanna 99-62
Lykillinn
Lykilinn að sigri heimamanna var frábær varnarleikur í fyrsta leikhluta sem skapaði stóra og góða forystu sem þeir héldu út allan leikinn og bættu á eftir það sem leið á leikinn. Einar Árni róteraði liðinu vel og gaf mörgum leikmönnum tækifæri og mínútur. DJ Ballentine fór mikinn fyrir heimamenn og skilaði 30 stigum og var að aðstoða liðsfélaga sína mjög vel. Halldór Garðar átti einnig frábæran leik en hann skoraði 13 stig. Það er erfitt fyrir öll lið að ráða við Þórsara þegar vörnin heldur svona vel og þegar lykilmenn Þórsara eiga svona góðan dag.

Hvað mátti betur fara?
Það mátti allt betur fara í leik gestanna frá Akureyri, vörnin slöpp, sóknarleikurinn tilviljanakenndur á köflum og tapaðir boltar í alltof miklu magni. Eins og áður kom fram töpuðu gestirnir 7 boltum á fyrstu 5 mínútum leiksins en þeir enduðu með 30 tapaða bolta sem er alltof mikið fyrir lið á þeirra stað í svona mikilvægum leik. Heimamenn úr Þorlákshöfn töpuðu líka helling af boltum en komust upp með það.

Þáttaskil
Þáttaskilin urðu náttúrulega eftir 3-4 mínútur í leiknum þegar heimamenn voru komnir í 16 stiga forystu. En eitt sem hjálpaði Akureyringum ekki var brottrekstur Sindra Davíðssonar í öðrum leikhluta en hann fékk snemma tæknivillu og í 2.leikhluta fékk hann U og þar af leiðandi út úr húsi. Það var á brattann að sækja fyrir leik en Akureyringar auðvitað án Marquese Oliver og Ingva Rafns en það virtist of mikil blóðtaka í dag.
Umfjöllun & viðtöl / Axel Örn Sæmundsson
Myndir / Davíð Þór Guðlaugsson
Viðtöl:




