HomeFréttirÍsland náði ekki að fylgja fínum fyrri hálfleik eftir gegn Finnlandi

Ísland náði ekki að fylgja fínum fyrri hálfleik eftir gegn Finnlandi

 

Undir 16 ára lið stúlkna tapaði sínum fyrsta leik fyrir Finnlandi á Norðurlandamótinu í Kisakallio. Leikurinn fór 48-88 heimastúlkum í vil.

 

Gangur leiks

Finnland byrjaði leik dagsins mun betur. Héldu íslensku stelpunum stigalausum fyrstu fimm mínútur leiksins, en fyrsti leikhlutinn endaði 8-23. Ísland tók svo við sér í öðrum leikhlutanum. Þær sigruðu hann 18-15 og voru því 12 stigum undir í hálfleik 26-38.

 

Í seinni hálfleiknum sá liðið svo lítið til sólar. Finnland miklu ákveðnari á báðum endum vallarins. Ísland tapaði leiknum að lokum með 40 stigum, 48-88.

 

Tölfræðin lýgur ekki

Fyrir utan að ná að taka 18 fleiri skot í leiknum, var skotnýting Finnlands mun betri. Skutu 39% af vellinum á móti aðeins 26% nýtingu Íslands.

 

Hetjan

Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir leiddi liðið áfram í dag. Skilaði 14 stigum, 5 fráköstum og 2 stoðsendingum á þeim 24 mínútum sem hún spilaði.

 

Myndasafn

Tölfræði leiks

 

Viðtöl:

Fréttir
- Auglýsing -