Undir 20 ára lið kvenna leikur þessa dagana á Evrópumóti í Oradea í Rúmeníu. Fyrsta leik töpuðu þær fyrir Búlgaríu en náðu í sigur gegn gegn Danmörku í leik tvö. Í dag kl. 12:00 leika þær gegn Tyrklandi.
Tyrkland hefur líkt og Ísland unnið einn leik á mótinu og var það gegn Danmörku. Liðið tapaði naumlega fyrir Tékklandi en nokkuð stórt gegn Hvíta Rússlandi.
Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu hér að neðan, en annars eru allar upplýsingar um mótið og lifandi tölfræði að finna á heimasíðu keppninnar hér.
Þá munu fréttir af mótinu og viðtöl vera á Körfunni.




