Undir 20 ára lið kvenna tapaði rétt í þessu gegn Tyrklandi, 57-76, á Evrópumótinu í Oradea í Rúmeníu. Ísland náði ekki að halda í við Tyrkina sem voru einfaldlega of sterkir í dag. Liðið er því búið að sigra einn leik en tapa þremur það sem af er móti.
Atkvæðamest í íslenska liðinu var Thelma Dís Ágústsdóttir með 21 stig og 8 fráköst á 36 mínútum sem hún lék í leiknum.
Síðasti leikur liðsins í riðlakeppninni er gegn Hvíta Rússlandi á morgun, fimmtudag kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Upptaka af leiknum:




