spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLeikir dagsins: Biðin er á enda

Leikir dagsins: Biðin er á enda

Það er loksins komið að því. Eftir langt sumar rúllar Dominos deild karla af stað í kvöld.

Nýliðar Fjölnis fá Val í heimsókn sem hafa farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar. Þórsarar frá Akureyri heimsækja Hauka sem leika sinn fyrsta leik undir stjórn Israel Martin.

Stórleikur fer fram í Síkinu þar sem Tindastóll fær Keflavík í heimsókn og í Breiðholtinu mætast liðin sem mættust í átta liða úrslitum í eftirminnilegu einvígi, ÍR og Njarðvík.

Einnig hefst 1. deild karla með einum leik. Nánar verður fjallað um leiki kvöldsins á körfunni.

Leikir dagsins:

Dominos deild karla:

Haukar – Þór Ak kl 19:15

Fjölnir – Valur kl 19:15

ÍR – Njarðvík kl 19:15

Tindastóll – Keflavík kl 19:15

Fyrsta deild karla:

Breiðablik – Selfoss kl 19:15

Fréttir
- Auglýsing -