Gunnar Ólafsson sem lék með Keflavík í Dominos deildinni á síðustu leiktíð hefur rift samningi sínum við liðið. MBL greindi frá þessu í morgun.
„Markmiðið er að spila erlendis á næstu leiktíð og ég er í raun bara að vinna í því núna að koma mér út,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is og bætti við:
„Þessi ákvörðun mín að yfirgefa Keflavík hefur ekkert með það að gera að Sverrir hafi hætt með liðið. Ég rifti mínum samningi daginn áður en Sverrir sagði upp, þannig að það var í raun bara tilviljun að þetta skyldi hittast svona á.“
Gunnar er þessa dagana að æfa með A-landsliðinu fyrir verkefni í forkeppni Eurobasket 2021. Fyrsti leikur landsliðsins verður á Portúgal þann 7. ágúst, síðan verða tveir heimaleikir við Sviss og Portúgal í Laugardalshöllinni 10. og 17. ágúst og að lokum mun liðið halda út til Sviss og freista þess að stela útisigri þann 21. ágúst.



