Þór Þorlákshöfn var í eldlínunni í Bæjarins beztu deild karla í kvöld þar sem mikið var undir í harðri toppbaráttu deildarinnar.
Þór Þorlákshöfn gjörsigraði Hamar, 122–80, í Suðurlandsslag í Bæjarins beztu deild karla í kvöld. Heimamenn gerðu út um leikinn strax í fyrri hálfleik, unnu fyrsta leikhlutann 33–15 og leiddu með 29 stigum í hálfleik, 64–35. Djordje Dzeletovic fór fyrir Þórsurum með 34 stig og 10 fráköst og Halldór Garðar Hermannsson átti tvöfalda tvennu með 14 stig og 14 stoðsendingar, á meðan Joshua Hardiman var atkvæðamestur hjá Hamri með 27 stig og 9 fráköst.
Þorlákshafnarliðið hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu og mætti til leiks í 2. sæti deildarinnar með 16 stig, jafnt ÍA og Haukum að stigum á toppnum.
Karfan náði tali af Ilija Omrčen, þjálfara Þórs Þorlákshafnar, strax að leik loknum. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.





