Vilborg Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Val í kvöld eftir heimkomuna úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þegar Valskonur sóttu öruggan 88–65 útisigur gegn Fjölni í 7. umferð Bónusdeildar kvenna.
Vilborg lét strax til sín taka í Valsbúningnum og skilaði 11 stigum og 5 stoðsendingum í sigrinum, sem skilaði Val upp í 10 stig í 2.–5. sæti deildarinnar.
Karfan ræddi við Vilborgu að leik loknum um endurkomuna í íslenska boltann, frumraunina með Val og framhaldið í vetur.
Viðtalið við Vilborgu má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.




