Arna Rún Eyþórsdóttir átti stórgóðan leik fyrir Fjölni í kvöld þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Val, 88–65, í 7. umferð Bónusdeildar kvenna í Grafarvogi.
Hin efnilega Arna Rún var atkvæðamest heimakvenna í leiknum, skoraði 20 stig og tók 7 fráköst, þrátt fyrir að Fjölnisliðinu hafi ekki tekist að ná í sín fyrstu stig á tímabilinu.
Karfan tók Örnu Rún tali eftir leik og fór yfir frammistöðuna og stöðuna hjá Fjölnisliðinu.
Viðtalið við Örnu Rún má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.




