HomeÚti í heimiEuroleagueÍ hart við sambandið vegna landsliðsleikmanna

Í hart við sambandið vegna landsliðsleikmanna

Hörð deila hefur brotist út milli Ibons Navarro, spænsks þjálfara serbneska stórliðsins Rauðu stjörnunnar (Crvena zvezda), og serbneska körfuknattleikssambandsins (KSS) vegna landsliðsverkefna í komandi landsleikjaglugga.

Eftir sigur Rauðu stjörnunnar á Cibona um helgina lýsti Navarro því yfir á blaðamannafundi að félagsliðið gengi alltaf fyrir landsliðinu og spurði í framhaldinu: „Hver borgar leikmönnunum laun?“ Ummælin vöktu hörð viðbrögð hjá serbneska sambandinu, sem sendi frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem orðaval þjálfarans var fordæmt og bent á að ríkið fjármagnaði félagið að stórum hluta – bæði laun leikmanna og þjálfara.

Fjórir leikmenn Rauðu stjörnunnar eru í æfingahópi Serbíu fyrir mikilvæga leiki í undankeppni HM, þar á meðal landsliðsmennirnir Ognjen Dobric og Dejan Davidovac, en félagið hafði þegar samþykkt að hleypa Vojin Medarevic í verkefnið. Navarro er að stýra liði utan Spánar í fyrsta sinn á ferlinum og virðist hafa vanmetið hversu mikil helgi ríkir í kringum landsliðið í serbneskri körfuboltamenningu, þótt fleiri EuroLeague-félög, á borð við Zalgiris Kaunas, hafi einnig haldið aftur af sínum leikmönnum fyrir komandi landsleikjaglugga.

Fréttir
- Auglýsing -