HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaÚrslit kvöldsins í Bæjarins Beztu deild karla – Þór Þorlákshöfn lagði topplið...

Úrslit kvöldsins í Bæjarins Beztu deild karla – Þór Þorlákshöfn lagði topplið Hauka á Ásvöllum

Fimm leikir fóru fram í áttundu Bæjarins Beztu deildar karla í kvöld. Þór Þorlákshöfn vann glæsilegan 16 stiga útisigur gegn toppliði Hauka á Ásvöllum og komst þar með á topp deildarinnar á innbyrðis viðureign. Þá unnu Breiðablik, Selfoss, Snæfell og KFG öll góða sigra.

Úrslit kvöldsins í 1. deild karla:

  • Breiðablik 104 – 91 Skallagrímur
  • Fjölnir 81 – 106 Selfoss
  • Hamar 78 – 84 Snæfell
  • Haukar 90 – 106 Þór Þ.
  • KFG 105 – 88 KV

Eftir leiki kvöldsins eru Þór Þorlákshöfn og Haukar jöfn á toppi deildarinnar með 14 stig, en ÍA kemur þar á eftir í þriðja sæti með 12 stig og á leik til góða. KFG, Selfoss og Breiðablik eru öll með 10 stig í 4.–6. sæti og KV situr í því sjöunda með 8 stig. Í neðri hlutanum eru Snæfell, Hamar og Þór Akureyri öll með 4 stig í 8.–10. sæti á meðan Skallagrímur og Fjölnir reka lestina með 2 stig hvort.

Fréttir
- Auglýsing -