ÍR vann mikilvægan útisigur á Aþenu í eina leik kvöldsins í Bæjarins Beztu deild kvenna, 68–62.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimakonur í Aþenu leiddu með einu stigi í hálfleik, 30–29 (17–18, 13–11). Gestirnir úr Breiðholtinu sneru hins vegar taflinu við í þriðja leikhluta, sem þær unnu 21–15, og héldu forystunni allt til loka.
Janiya Foskey fór fyrir liði ÍR með 18 stig, 10 fráköst og 8 stolna bolta, Gréta Hjaltadóttir skoraði 15 stig og tók 7 fráköst, Dagny Emma Kristinsdóttir bætti við 14 stigum og Jóhanna Wiktoría Harðardóttir skoraði 12 stig. Hjá Aþenu var Gréta Björg Melsted stigahæst með 25 stig, Darina Andriivna Khomens’ka var með 13 stig og 17 fráköst og Ísabella Sif Elmarsdóttir skoraði 10 stig.
Með sigrinum jafnar ÍR lið Aþenu og Njarðvíkur b að stigum með 4 stig og lyftir sér upp í áttunda sæti deildarinnar á innbyrðis viðureignum, en Aþena situr í því níunda.




