HomeBónus deildinBónus deild karlaOrðið á götunni: Er Ingvi Þór á leiðinni til Keflavíkur?

Orðið á götunni: Er Ingvi Þór á leiðinni til Keflavíkur?

Sögusagnir eru á kreiki um að bakvörðurinn Ingvi Þór Guðmundsson sé á leið til Keflavíkur í Bónusdeild karla, en hann yfirgaf herbúðir Ármanns á dögunum.

Samkvæmt orðinu á götunni hefur hann þegar æft með Keflavíkurliðinu og gæti því verið að sameinast bróður sínum, Braga Guðmundssyni, sem gekk einmitt til liðs við Keflavík frá Ármanni síðastliðið sumar.

Ingvi Þór, sem er 28 ára bakvörður og uppalinn í Grindavík, lék fimm leiki með Ármanni á yfirstandandi tímabili í Bónusdeild karla og skoraði í þeim 12,0 stig, tók 3,6 fráköst, gaf 4,2 stoðsendingar og stal 2,0 boltum að meðaltali á rúmum 27 mínútum.

Áður en hann gekk í raðir Ármanns lék Ingvi Þór með uppeldisfélagi sínu Grindavík, Þór Akureyri, Haukum og Þrótti Vogum. Enn sem komið er liggur ekkert staðfest fyrir um næsta skref hans, en spennandi verður að sjá hvort bræðurnir leiði saman hesta sína í Blue-höllinni á næstunni.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -