Íslenska kvennalandsliðið hefur farið frábærlega af stað í undankeppni EM 2029 og vann í kvöld sinn þriðja sigur í jafnmörgum leikjum þegar Aserbaídsjan var lagt að velli á Ásvöllum, 129–41. Þrátt fyrir að hafa leikið án nokkurra sterkra pósta í þessum glugga sýndi liðið mikla breidd og festu, þar sem sex leikmenn skoruðu tíu stig eða meira og liðið stal 32 boltum í vörninni.
Lykilleikmaðurinn Danielle Rodriguez, sem er fjarri góðu gamni vegna meiðsla en fylgdist með liðinu á Ásvöllum í kvöld, var tekin tali eftir leik og má sjá viðtalið í spilaranum hér að neðan.




