Yfirburðir íslenska kvennalandsliðsins voru algjörir frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu þegar liðið vann 88 stiga stórsigur á Aserbaídsjan í Hafnarfirði í kvöld. Ísland tók 50 fráköst gegn 24, gaf 40 stoðsendingar og tók völdin strax í upphafi með 30–11 forystu eftir fyrsta leikhluta áður en liðið lokaði leiknum endanlega með 47–10 þriðja leikhluta, en að lokum vinna þær leikinn 129-41.
Karfan spjallaði við Ástu Júlíu Grímsdóttur, leikmann Íslands, eftir leik en viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.




