HomeFréttirAlgjörir yfirburðir á Ásvöllum: Thelma Dís setti landsliðsmet í 88 stiga sigri...

Algjörir yfirburðir á Ásvöllum: Thelma Dís setti landsliðsmet í 88 stiga sigri Íslands

Íslenska kvennalandsliðið vann yfirburðasigur á Aserbaídsjan, 129–41, í undankeppni EM 2029 á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld.

Thelma Dís Ágústsdóttir átti stórleik, skoraði 41 stig og setti nýtt landsliðsmet þegar hún setti niður 13 þriggja stiga körfur í leiknum.

Ísland gerði út um leikinn strax í upphafi og leiddi með 19 stigum eftir fyrsta leikhluta, 30–11. Í hálfleik var staðan 52–22 en íslenska liðið gekk endanlega frá gestunum í þriðja leikhluta sem það vann 47–10 og leiddi með 67 stigum, 99–32, fyrir lokaleikhlutann.

Yfirburðirnir voru algjörir á öllum sviðum vallarins; Ísland tók 50 fráköst gegn 24, gaf 40 stoðsendingar gegn 12, stal 32 boltum og skoraði heil 60 stig eftir tapaða bolta Aserbaídsjan.

Thelma Dís hitti úr 13 af 23 þriggja stiga skotum sínum (56,5%) og endaði með 41 stig, 5 fráköst og 40 framlagsstig á rúmum 27 mínútum. Næst henni í stigaskorun kom Helena Rafnsdóttir með 15 stig,

Anna Ingunn Svansdóttir skoraði 13 stig og þær Emma Theódórsson, Rebekka Rut Steingrímsdóttir og Berglind Katla Hlynsdóttir gerðu 10 stig hver. Þá átti Eva Wium Elíasdóttir flottan leik með 8 stig, 7 fráköst og 11 stoðsendingar.

Með sigrinum lýkur Ísland fyrsta glugganum með fullt hús stiga á toppi A-riðils eftir þrjá sigra í þremur leikjum. Riðlakeppninni lýkur í febrúar á næsta ári þegar Ísland mætir sömu þjóðum á ný:

  • Miðvikudagur 10. febrúar 2027: Ísland – Írland (heimaleikur)
  • Laugardagur 13. febrúar 2027: Sviss – Ísland (útileikur)
  • Þriðjudagur 16. febrúar 2027: Aserbaídsjan – Ísland (útileikur)

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatansson)

Viðtöl væntanleg

Fréttir
- Auglýsing -