HomeFréttirÍsland valtaði yfir Aserbaídsjan á Ásvöllum – 88 stiga sigur og 41...

Ísland valtaði yfir Aserbaídsjan á Ásvöllum – 88 stiga sigur og 41 stig frá Thelmu Dís

Íslenska kvennalandsliðið vann stórsigur á Aserbaídsjan, 129–41, í undankeppni EM 2029 á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld.

Ísland tók völdin strax á upphafsmínútunum og leiddi með 19 stigum eftir fyrsta leikhluta, 30–11. Í hálfleik var staðan 52–22, en íslenska liðið stakk endanlega af í þriðja leikhluta sem það vann með 37 stiga mun, 47–10, og var staðan þá orðin 99–32 fyrir lokaleikhlutann. Lengsti kafli Íslands án þess að Aserbaídsjan skoraði var 23–0.

Thelma Dís Ágústsdóttir fór á kostum í liði Íslands og skoraði 41 stig í leiknum, en stigahæst í liði Aserbaídsjan var Dina Ulyanova með 8 stig.

Með sigrinum lýkur Ísland fyrsta landsleikjaglugganum með fullt hús stiga á toppi A-riðils eftir sigra gegn Írlandi (81–73), Sviss (100–82) og nú Aserbaídsjan (129–41). Næstu leikir í riðlinum fara fram í febrúar á næsta ári.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -