Sögusagnir eru á kreiki um að Hákon Örn Hjálmarsson, fyrirliði ÍR, sé á leið til Njarðvíkur og eigi í viðræðum um að semja í IceMar höllinni. Þessar vangaveltur eru þó enn sem komið er aðeins sögusagnir.
Hákon Örn, sem er 27 ára bakvörður, er mikill ÍR-ingur og hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil hér á landi með uppeldisfélaginu í Breiðholtinu. Hann er algjör lykilmaður í liði ÍR og fór virkilega vel af stað í fyrstu þremur leikjum Bónusdeildar karla í vetur þar sem hann skoraði 15,7 stig, tók 2,7 fráköst og gaf 5,0 stoðsendingar að meðaltali, en hann hefur hins vegar verið frá vegna meiðsla síðan þá.

Án Hákons hefur gengið brösuglega hjá ÍR að undanförnu og liðið tapað síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. Næsti leikur ÍR er gegn KR fimmtudaginn 19. nóvember.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




