HomeLandsliðinÍsland yfirspilaði Sviss – Sara, Berglind og Rebekka með 74 stig

Ísland yfirspilaði Sviss – Sara, Berglind og Rebekka með 74 stig

Íslenska kvennalandsliðið vann glæsilegan og sannfærandi átján stiga sigur á Sviss, 100–82, í A-riðli undankeppni EuroBasket 2029 á Ásvöllum í Hafnarfirði í dag. Með sigrinum er Ísland eitt og taplaust á toppi riðilsins eftir tvo fyrstu leiki sína.

Íslenska liðið mætti af gríðarlegum krafti og orku til leiks, náði strax 5–0 forskoti og breytti stöðunni fljótlega í 10–1 áður en Sviss tók sitt fyrsta leikhlé eftir tæpar þrjár mínútur. Gestirnir virtust varla vaknaðir í upphafi og komst Ísland í 16–5. Svissneska liðið hresstist þó þegar leið á fyrsta leikhlutann, ekki síst fyrir tilstilli Herminjard sem skoraði sex stig í röð undir lok hans og minnkaði muninn í 22–17, en Diljá Lárusdóttir lokaði leikhlutanum með flautuþristi og kom Íslandi í 25–19.

Herminjard hélt áfram að láta að sér kveða í upphafi annars leikhluta, setti niður þrist og skoraði þar með ellefu stig í röð fyrir Sviss til að minnka muninn í 30–25. Ísland komst hins vegar fljótt í bónus, átti frábært áhlaup og jók forskotið í 39–26. Berglind Katla Hlynsdóttir átti stórkostlega innkomu af bekknum og stýrði leiknum af miklu öryggi á meðan Wenger hélt Sviss á floti. Ísland náði sextán stiga forskoti, 50–34, og eftir stutt áhlaup Sviss sem Pekka Salminen stöðvaði með leikhléi leiddi Ísland með fimmtán stigum í hálfleik, 55–40.

Sviss opnaði síðari hálfleikinn á 5–0 áhlaupi en íslenska liðið svaraði samstundis með 7–0 spretti. Tveir þristar í röð frá Sviss minnkuðu muninn í 66–53 um miðjan þriðja leikhluta og tókst gestunum að saxa enn frekar á forskotið, en glæsileg sending frá Berglindi Kötlu á Diljá í hraðaupphlaupi kveikti aftur í Ásvöllum og kom Íslandi í 74–60 fyrir lokaátökin.

Í fjórða leikhluta spilaði íslenska liðið ótrúlega vel saman og lögðu allir leikmenn sig fram af fullum krafti. Forskotið fór fljótlega upp í 83–68 og síðar 89–76 þegar þrjár og hálf mínúta lifðu leiks. Ísland sigldi sigrinum örugglega í höfn og rauf hundrað stiga múrinn í lokin, 100–82.

Íslenska liðið leiddi leikinn í 39 mínútur og 29 sekúndur og leyfði Sviss aldrei að komast yfir. Frákastabaráttan endaði jöfn, 46–46, en gríðarlegur varnarleikur og barátta Íslands skilaði 16 stolnum boltum gegn aðeins 4 hjá Sviss. Ísland neyddi Sviss í 23 tapaða bolta og skoraði 27 stig upp úr þeim gegn 14 hjá gestunum, auk þess sem hraðaupphlaupin gáfu Íslandi 23 stig gegn 7.

Þrjár íslenskar landsliðskonur skoruðu tuttugu stig eða meira í leiknum. Sara Rún Hinriksdóttir fór fyrir liðinu með 31 stig, 9 fráköst, 5 stoðsendingar, 4 stolna bolta og 28 framlagsstig. Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði 23 stig (þar af 3 af 6 í þristum og 8 af 10 í vítum), tók 3 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og fékk 20 framlagsstig, og Rebekka Steingrímsdóttir skilaði 20 stigum (8 af 9 í vítum), 4 fráköstum, 5 stoðsendingum, 5 stolnum boltum og 23 framlagsstigum. Þá skoraði Thelma Dís Ágústsdóttir 9 stig (3 af 7 í þristum) og gaf 3 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir var með 6 stig, 7 fráköst og 2 stolna bolta, Diljá Lárusdóttir skoraði 5 stig og Þóranna Kika Hodge-Carr bætti við 4 stigum og 7 fráköstum, þar af 5 sóknarfráköstum.

Þriðji og síðasti leikur Íslands í þessum landsliðsglugga fer fram næstkomandi þriðjudag í Ólafssal á Ásvöllum gegn Aserbaídsjan, sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í keppninni. Miðasala á leikinn fer fram í Stubb-appinu.

Tölfræði leiks

Myndasafn (væntanlegt)

Viðtöl væntanleg

Fréttir
- Auglýsing -