HomeÚti í heimiEuroleagueRisabreytingar í pípunum í Evrópu: Ný lið fá fast sæti í EuroLeague

Risabreytingar í pípunum í Evrópu: Ný lið fá fast sæti í EuroLeague

Áætluð stækkun EuroLeague árið 2027 er óðum að taka á sig skýrari mynd en samkvæmt nýrri umfjöllun ítalska stórblaðsins La Gazzetta dello Sport stendur til að bæta sex liðum við sem varanlegum sérleyfishöfum í deildinni. Þar ber helst að nefna nýtt lið frá höfuðborg Ítalíu, Maxima Roma, en auk þeirra munu Valencia Basket, Paris Basketball, Dubai Basketball, Hapoel Tel Aviv og PAOK Thessaloniki ganga til liðs við þann hóp. Liðin bætast við tólf núverandi stofnfélaga keppninnar, að undanskildu rússneska félaginu CSKA Moskvu sem enn er í banni.

Fjögur sögufræg lið munu samkvæmt tillögunum fá þriggja ára sérstakt boðskort; Partizan og Crvena Zvezda frá Belgrad, ásamt ítölsku liðunum Virtus Bologna og Napoli. Þessi félög myndu jafnframt njóta forgangs þegar deildin stækkar enn frekar árið 2030 upp í alls 28 lið. Aðeins tvö laus sæti verða þá eftir sem lið geta unnið sig inn í gegnum EuroCup.

Fjárhagslegu áhrifin eru gríðarleg, en nýju félögin þurfa að greiða á bilinu 50 til 90 milljónir evra í inngöngugjald til að tryggja sér sömu stöðu og núverandi eigendur. Áætlað er að þessi aðgangseyrir muni skila um 400 milljónum evra í heildartekjur, sem þýðir um 30 milljónir evra – jafnvirði rúmra fjögurra milljarða króna – í vasa hvers og eins af þeim þrettán félögum sem nú halda utan um deildina. Búist er við að stjórn EuroLeague muni formlega samþykkja þetta nýja skipulag á fundi í lok mánaðarins, sem setur jafnframt framtíðarsamstarf við NBA um sérstaka NBA Europe-deild á krossgötur.

Fréttir
- Auglýsing -