HomeFréttirÚrvalslið Iceland Airwaves ’26 valið – Hverjir skipa byrjunarlið tónlistarmanna?

Úrvalslið Iceland Airwaves ’26 valið – Hverjir skipa byrjunarlið tónlistarmanna?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Snekkjupopparinn Jón Frí og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds. Þar sem Jón Frí var nýstiginn af sviðinu á Iceland Airwaves um helgina var kjörið tækifæri til að slá á léttari strengi undir lok þáttarins og stilla upp hinu eina sanna úrvalsliði körfuboltans skipuðu tónlistarmönnum hátíðarinnar.

Snögg sérfræðiúttekt félaganna leiðir í ljós að þetta lið væri nálægt því að vera fullgilt í 40+ flokkinn á Molduxamótinu 2028 – og ljóst er að þeir yrðu þar til alls líklegir.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Úrvalslið Iceland Airwaves ’26 Poppara

Daði er leikstjórnandi sem leitar að því að gera aðra betri á vellinum
  • Leikstjórnandi (PG): Daði Birgisson (Jagúar, Monotown, Jónfrí)Sterkur varnarlega og mætir með frábæra stroku. Stýrir spilinu og heldur taktinum í sóknarleiknum.
Stigahæsti leikmaður liðsins yrði líklega Valdimar
  • Skotbakvörður (SG): Valdimar Guðmundsson (Valdimar, Lón)Frábær söngrödd og skotstroka to die for. Kemur með mikla nærveru og banvæna skotógn utan af velli.
Stíga út og berjast orkan kemur öll úr Skagafirðinum
  • Lítill framherji (SF): Arnar Freyr Frostason (Úlfur Úlfur)Í toppstandi og líklega orðheppnasti maður landsins. Hann talar skít allan leikinn á meðan hann pakkar andstæðingnum saman á vellinum.
  • Kraftframherji (PF): Helgi Sæmundur Guðmundsson (Úlfur Úlfur)Alvöru muscle. Hinn fullkomni enforcer á blokkinni – líkamlegi styrkurinn sem er nauðsynlegur þegar byrjunarliðið er á mörkum þess að vera of „soft“.
JónFrí er stór maður sem getur bæði sett boltann í gólfið og skotið
  • Miðherji (C): Jón Frímannsson (Jónfrí)Snekkjupoppari með alvöru hæð í teignum. Kemst ennþá furðuvel upp og niður völlinn og gæti sett nokkra þrista á sínum besta degi.
Teitur er límið í klefanum, heldur mönnum hamingjusömum og við efnið þegar á reynir

Sjötti maðurinn (6th Man):

  • Teitur Magnússon: Silkimjúkar hreyfingar sem gefa glæsilegum lagabálki hans ekkert eftir. Límið í búningsklefanum sem bindur þennan óútreiknanlega hóp saman.
Fréttir
- Auglýsing -