HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaKV lagði Aþenu á Meistaravöllum og lyfti sér upp töfluna

KV lagði Aþenu á Meistaravöllum og lyfti sér upp töfluna

 

KV hafði betur gegn Aþenu, 71–66, í eina leik kvöldsins í Bæjarins Beztu deild kvenna á Meistaravöllum. Með sigrinum náði KV sínum öðrum deildarsigri í vetur og jafnaði bæði Aþenu og Njarðvík b að stigum í mikilli miðjupakka-baráttu.  

Vesturbæingum tókst að ná forystunni snemma leiks og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 20–12. Munurinn hélst svipaður út allan fyrri hálfleikinn og fór KV með tíu stiga forystu inn í hálfleikshléið, 39–29.  

Heimakonur héldu frumkvæðinu í þriðja leikhluta og komust tólf stigum yfir, 60–48. Aþena beit frá sér af miklum krafti í fjórða leikhlutanum og minnkaði muninn með góðum 18–11 kafla, en KV hélt sjó á lokasekúndunum og tryggði sér fimm stiga sigur.  

Klara Líf Pálsdóttir fór fyrir liði KV og skilaði 20 stigum og 6 fráköstum, en næst henni kom Telma Lind Bjarkadóttir með 11 stig. Ingunn Erla Bjarnadóttir skoraði 8 stig og þær Rakel Þorvaldsdóttir og Svanhildur Ásta Sigurðardóttir skiluðu báðar 6 stigum hvor.  

Hjá Aþenu dró Díana Björg Guðmundsdóttir vagninn með 15 stig, Gréta Björg Melsted bætti við 13 stigum og Darina Andriivna Khomenska átti flotta tvennu með 12 stigum og 11 fráköstum. Ísabella Sif Elmarsdóttir skilaði 9 stigum, 5 fráköstum og 5 stolnum boltum og Isabella Íris Aba Idun skoraði 8 stig.  

Eftir leikinn situr KV í sjöunda sæti deildarinnar með 4 stig líkt og Aþena og Njarðvík b, en Þór Þorlákshöfn er enn á toppi deildarinnar með 10 stig.

Fréttir
- Auglýsing -