HomeBónus deildinBónus deild karlaStórtíðindi í Breiðholti: Semur við ÍR og spilar strax í kvöld

Stórtíðindi í Breiðholti: Semur við ÍR og spilar strax í kvöld

ÍR-ingar hafa tryggt sér verulegan liðsstyrk fyrir átökin í Bónus deild karla en Ólafur Björn Gunnlaugsson hefur skrifað undir samning við félagið. Hann kemur beint frá Keflavík eftir að hafa samið um starfslok þar á dögunum.  

Ólafur tók þátt í fjórum leikjum með Keflvíkingum í vetur þar sem hann skilaði sjö stigum og þremur fráköstum að meðaltali.  

Pappírarnir gengu í gegn með miklum hraða og er leikheimildin komin í hús. Stuðningsmenn ÍR þurfa því ekki að bíða lengi eftir frumraun hans, þar sem hann ferðast beint með liðinu í Síkið og verður í leikmannahópnum gegn Tindastóli í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -