HomeFréttirStígur til hliðar af heilsufarsástæðum

Stígur til hliðar af heilsufarsástæðum

Kristaps Porzingis, leikmaður Golden State Warriors í NBA-deildinni, hefur tilkynnt að hann muni stíga tímabundið til hliðar frá körfuknattleik til að forgangsraða eigin heilsu. Hinn 31 árs gamli Letti hefur ekkert spilað á yfirstandandi leiktíð eftir að hafa misst af bæði æfingabúðum og undirbúningstímabilinu vegna vanheilsu.

Porzingis forðaðist að nota orðið starfslok en gaf frá sér yfirlýsingu þar sem hann útskýrði ákvörðunina:

„Ég hlakkaði mikið til að spila með þessum hópi á tímabilinu en eftir því sem ég jók álagið svaraði líkaminn ekki eins og ég vonaðist eftir. Mér líður ágætlega en ég veit hvað þarf til og ég er ekki á þeim stað að geta spilað á því getustigi sem ég krefst af sjálfum mér. Á þessum tímapunkti hef ég tekið þá ákvörðun að setja heilsuna í fyrsta sæti og stíga til hliðar frá íþróttinni sem ég elska. Ég vil sýna Golden State Warriors fulla virðingu og vinna með þeim að skynsamlegri lausn.“

Porzingis hafði áður greint frá því að hann hefði greinst með POTS-heilkennið (e. postural orthostatic tachycardia syndrome), þótt Warriors hafi ekki staðfest opinberlega hvort sú greining sé meginástæða fjarveru hans.

Þrátt fyrir þessa ákvörðun breytist staða kappans lítið hjá félaginu þegar litið er til félagaskiptagluggans sem lokar 11. febrúar. Samkvæmt Anthony Slater hjá ESPN er Porzingis enn talinn verðmætur kostur í leikmannaskiptum og hefur stjórn Warriors þegar kannað slíka möguleika.

Samningur hans hljóðar upp á 20 milljónir Bandaríkjadala og telur enn inn í launaþak félagsins – þótt launagreiðslur séu í bið á meðan hann er frá keppni – sem gerir samninginn fýsilegan fyrir lið sem vilja losa um launarými til lengri tíma. Porzingis kom upphaflega til Golden State frá Atlanta Hawks á lokadegi félagaskipta síðastliðinn febrúar.

Fréttir
- Auglýsing -