HomeNeðri deildir2. deild karlaHaukar freista þess að ná toppsætinu í Bæjarins Beztu deild karla –...

Haukar freista þess að ná toppsætinu í Bæjarins Beztu deild karla – Þrír leikir í Bæjarins Beztu deild kvenna

Körfuboltaáhugafólk fær nóg fyrir peninginn í dag en fimm leikir fara fram í þremur deildum.

Í Bæjarins Beztu deild karla tekur taplaust lið Hauka á móti Snæfelli á Ásvöllum klukkan 18:15. Með sigri geta Haukar náð tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar, en fyrir leikinn eru þeir jafnir ÍA og Þór Þ. með tíu stig. Snæfellingar eru hins vegar í harðri baráttu í neðri hlutanum með einn sigur í fimm leikjum.

Í Bæjarins Beztu deild kvenna er boðið upp á þrjá leiki. Klukkan 16:00 tekur b-lið Njarðvíkur á móti Þór Akureyri í Ljónagryfjunni á meðan botnlið Skallagríms fær Breiðablik í heimsókn í Borgarnes. Klukkustund síðar, klukkan 17:00, fær b-lið Keflavíkur topplið Þórs Þ. í heimsókn í Blue-höllina.

Í 2. deild karla mætast Vestri og ungmennalið Þórs Þ. klukkan 16:00 á Ísafirði.

Bæjarins Beztu deild karla

Haukar – Snæfell kl. 18:15

Bæjarins Beztu deild kvenna

Njarðvík b – Þór Ak. kl. 16:00 Skallagrímur – Breiðablik kl. 16:00 Keflavík b – Þór Þ. kl. 17:00

2. deild karla

Vestri – Þór Þ. u kl. 16:00

Fréttir
- Auglýsing -