Lokaleikur 5. umferðar Bónus deildar karla fer fram í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Stjörnunni í IceMar höllinni klukkan 19:15.
Mikil pressa hvílir á heimamönnum í Njarðvík sem hafa farið afar illa af stað í vetur og eru enn án stiga eftir fjóra leiki á botnsvæði deildarinnar. Stjarnan situr í áttunda sætinu með einn sigur og tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum og getur með sigri í kvöld komist upp að hlið Hattar með fjögur stig.
Bónus deild karla
Njarðvík – Stjarnan kl. 19:15




