Fjölbreytt dagskrá er fram undan í Bónus deild kvenna þar sem fjórir leikir fara fram í kvöld.
Stjarnan getur jafnað topplið Grindavíkur að stigum með heimasigri á Fjölni klukkan 18:30, en klukkan 19:15 hefjast svo þrír leikir samtímis: Ármann tekur á móti Haukum, KR fær Tindastól í heimsókn í Vesturbæinn og Valur mætir Keflavík að Hlíðarenda.
Bónus deild kvenna:
18:30 Stjarnan – Fjölnir
19:15 Ármann – Haukar
19:15 KR – Tindastóll
19:15 Valur – Keflavík





