HomeÚti í heimiEvrópukeppni„Þetta var óhugnanlegt augnablik“ – Sjáðu atvikið þegar Satoransky slasaðist í leiknum...

„Þetta var óhugnanlegt augnablik“ – Sjáðu atvikið þegar Satoransky slasaðist í leiknum gegn Dubai

Tékkneski bakvörðurinn Tomas Satoransky, leikmaður Hapoel Tel Aviv, sendi frá sér hughreystandi skilaboð af sjúkrahúsi eftir að hafa lent í skelfilegu falli í 97–83 tapi liðsins gegn Dubai Basketball í 9. umferð Evrópudeildarinnar.

Atvikið átti sér stað seint í þriðja leikhluta þegar hinn 34 ára gamli Satoransky fór upp í frákast, féll harkalega á bakið og virtist skella höfðinu í gólfið. Hann lá óvígur eftir á vellinum og var að lokum borinn af velli á sjúkrabörum og fluttur með hraði á sjúkrahús í Dubai til frekari skoðunar vegna gruns um heilahristing.

Á laugardagsmorgun birti leikmaðurinn mynd af sjúkrabeðinu á samfélagsmiðlum þar sem hann þakkaði fyrir hlýjar kveðjur og hrósaði viðbragðsaðilum:

„Mig langaði að þakka öllum innilega fyrir skilaboðin, stuðninginn og umhyggjuna. Sérstakar þakkir fær lið Dubai Basketball, leikmenn þeirra og starfsfólk, fyrir skjót viðbrögð og alla hjálpina. Einnig vil ég þakka liðsfélögum mínum og starfsfólki Hapoel kærlega fyrir stuðninginn. Þetta var sannarlega hræðilegt augnablik en mér líður mun betur núna og vonast til að snúa aftur á völlinn sem allra fyrst.“

Dimitris Itoudis, þjálfari Hapoel, lýsti yfir miklum létti eftir leik þegar fréttir bárust af því að Satoransky væri með fullri meðvitund og við góða rænu. Áður en Satoransky meiddist hafði hann spilað í 14 mínútur og skilað 3 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum.

https://x.com/skweeksports/status/2116244738726658294?a=SfGUGuAJiVD6ahaiJBs&s=46
Fréttir
- Auglýsing -