Nýliðar Sindra veittu KR harða keppni á Meistaravöllum í kvöld þegar liðin mættust í 4. umferð Bónus deildar karla. Hornfirðingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og neituðu að gefast upp þrátt fyrir að lenda 20 stigum undir í seinni hálfleik, en KR marði að lokum fimm stiga sigur í miklum stigaleik, 107–102.
Birgir Leó Halldórsson átti fínan leik í liði Sindra og skilaði 10 stigum á þeim 25 mínútum sem hann spilaði, en atkvæðamestur gestanna var Kaleb Lamar Higgins sem fór á kostum með 47 stig og 13 stoðsendingar.
Rætt var við Birgi Leó Halldórsson, leikmann Sindra, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.





